HM leikur Núnú

Heimsmeistaramótið í fótbolta 2026 · 8-liða úrslit
Notandi:
HM-leikur Núnú 2026

Hver vinnur bikarinn?

100.000 kr.
í 1. sæti
10 sæti
vinna til verðlauna

Klárum skráninguna

Sláðu inn símanúmerið þitt til að staðfesta þátttöku. Kennitala verður eingöngu spurð um ef þú vinnur verðlaun.

🇮🇸 +354
Sláðu inn 7 tölustafi.

Velkomin/n í HM leik Núnú

Svona virkar leikurinn:

  1. 1Veldu þína spá, ókeypis þátttaka
  2. 2Vistaðu valið og safnaðu stigum
  3. 3Komdu þér á toppinn fyrir verðlaun
  4. 4Skoraðu á vinina til að auka möguleikana

Giskaðu núna

Giskaðu á leiki, safnaðu stigum og komdu þér á toppinn fyrir verðlaun.

Næsti leikur læsist eftir
--dagar
--klst
--mín
--sek
0 stig
sæti
2 jóker
Deildu með 3 vinum til að opna fyrir Val 2.
Hleður leikjum...

Úrslit leikja

Nýjustu leikir efst. Veldu umferð til að sjá.

Úrslit leikja eru færð inn daglega. Kvöld- og næturleikir eru færðir inn næsta dag og stigataflan uppfærð samkvæmt því.
Hleður leikjum...

Stigatafla

Topp-25 keppendur eftir heildarstigum. Ef leikmenn eru með jafn mörg stig gilda úrslitareglur 7.1–7.3 í Reglum (nákvæmar spár, stig í úrslitaleik, stig í síðari umferðum).

Úrslit leikja eru færð inn daglega. Kvöld- og næturleikir eru færðir inn næsta dag og stigataflan uppfærð samkvæmt því.

Þú þarft að skrá þig inn til að sjá stigatöfluna.

Skráðir
Þín stig
Þitt sæti
Jóker eftir
Hleður...

Leiðbeiningar

Svona virkar HM leikur Núnú

Spáðu fyrir um úrslit útsláttarleikjanna á HM 2026, frá 8-liða úrslitum til lokaleiks. Því fleiri leiki sem þú giskar á rétt, því fleiri stig færðu. Efstu leikmenn vinna allt að 100.000 kr. gjafakort í Smáralind.

Hvernig gengur leikurinn fyrir sig

1

Það kostar ekkert að taka þátt

Engin greiðsla, engin skuldbinding. Bara netfangið þitt.

2

Spáðu fyrir um úrslit leikja

Giskaðu á nákvæmar lokatölur eftir 90 mínútur (án framlengingar/víti). Fyrir jafntefli velurðu hvaða lið kemst áfram.

3

Veldu 1., 2. og 3. sæti

Lokastaðan: Spáðu fyrir um hvaða þrjú lið enda á verðlaunapallinum. Læsist við upphaf 8-liða úrslita.

4

Beittu jókernum

Þú átt 2 Jókera til að nota. Jóker tvöfaldar stig þess leiks ef spáin er rétt.

Hvernig færðu stig?

Nákvæm lokastaða 5 stig
Réttur markamunur (t.d. 2-1 en þú giskaðir 3-2) 3 stig
Réttur sigurvegari (eða jafntefli) 1 stig
Röng spá 0 stig
Bónus: rétt spáð hvor kemst áfram í útslætti +1 stig

Aðeins hæsta stigaþrepið gildir í hverjum leik. Bónusinn (+1) leggst ofan á það.

Jóker tvöfaldar stig þess leiks ef spá er rétt.
🏆 Lokastöðuspá: Heimsmeistari gefur 10 stig, Silfur 6 stig, Brons 4 stig. Nálægt-bónus (rétt lið en rangt sæti) gefur 2-3 aukastig.

Hvenær er hvað lokað?

Spár fyrir hvern leik læsast 2 klst. fyrir upphaf leiksins. Eftir það er ekki hægt að breyta.
🥇
Lokastöðuspáin (1., 2., 3. sæti) læsist við upphaf 8-liða úrslita.
🔒
Læstir leikir og leikir sem bíða úrslita eru sýndir sem Bíður úrslita og opnast sjálfkrafa þegar liðin ráðast.

Hvað er í boði?

🥇 1. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 100.000 kr.
🥈 2. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 50.000 kr.
🥉 3. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 25.000 kr.
4. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 15.000 kr.
5. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 10.000 kr.
6.–10. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 5.000 kr. hvert sæti
11.–20. sæti2 bíómiðar hvert sæti

Vinningar eru ekki reiðufé og eru ekki skiptanlegir fyrir reiðufé. Jafnstiga eru sýnd í sama sæti — sjá reglur.

Góð ráð

  • Best er að nota Google Chrome sem vafra á þessari heimasíðu.
  • Fylgstu með hvenær leikir opnast/lokast — sjáðu til þess að vera búin/n að vista þitt val nokkra klukkutíma fyrir leik. Einstaka leikir læsast 2 klukkutímum áður en þeir hefjast.
  • Ekki skilja eftir 2 jókera fyrir lokaleikinn — nýttu þá svo þú glatir þeim ekki.
  • Uppfærðu spár þegar þú vilt. Þú getur breytt spá þinni þangað til leikurinn læsist.
  • Áreiðanleg nettenging. Vertu á WiFi eða traustri 4G/5G þegar þú vistar val.
  • Deildu leiknum. Fleiri vinir í leiknum, meira gaman.

Fá tilkynningar tengt leiknum og öðrum tilboðum

Getur átt við tölvupóst og SMS. Hægt að slökkva hvenær sem er.

Skráðu þig inn til að velja að fá tilkynningar.

Bættu við netfangi til að geta fengið tilkynningar.

Reglur og skilmálar

HM leikur Núnú · Heimsmeistaramótið í fótbolta 2026

Útgefandi: Núnú lán ehf. (hér eftir „Núnú").

Leiktímabil: 8-liða úrslit til úrslitaleiks, u.þ.b. 9.–19. júlí 2026.

1. Um leikinn

HM leikur Núnú er ókeypis spáleikur, þar sem þátttakendur spá fyrir um lokastöðu (90 mín. auk uppbótartíma, en að undanskildum framlengingum og vítaspyrnukeppnum) í útsláttarleikjum knattspyrnumóts sumarsins 2026. Þátttakendur eru dæmdir eingöngu á færni sína í að spá fyrir um úrslit knattspyrnuleikja og röðun ræðst eingöngu af stigum sem safnast með spám þeirra.

Leikurinn er eign og á vegum Núnú og er hvorki tengdur né styrktur af FIFA, UEFA, KSÍ né öðrum móts- eða réttindahöfum.

2. Skilyrði þátttöku

  • Þátttakandi skal vera 18 ára eða eldri og með lögheimili á Íslandi.
  • Hver einstaklingur má aðeins hafa einn aðgang. Margfaldir eða falsaðir aðgangar leiða til útilokunar. Núnú áskilur sér rétt til að sannreyna auðkenni og útiloka þátttakendur sem brjóta þessa reglu.
  • Aðgangar sem eru útilokaðir vegna brota á þessum reglum eru færðir á lokaðan lista. Símanúmer og netföng sem tengd eru útilokuðum aðgangi er ekki hægt að nýskrá aftur á meðan leikurinn stendur yfir. Ef þú telur útilokun ranga skaltu hafa samband við hmleikur@nunu.is.
  • Starfsmenn Núnú og aðilar sem koma að framkvæmd leiksins mega taka þátt en eru ekki gjaldgengir til vinninga.
  • Þátttaka krefst þess að gefið sé upp bæði staðfest símanúmer (með SMS kóða) og staðfest netfang. Netfang er meginleið innskráningar; símanúmer er notað til að staðfesta auðkenni og senda tilkynningar um vinninga eða breytingar á leiknum.

3. Þátttökugjald

Þátttaka er ókeypis. Ekkert kaup, engin greiðsla og engin skuldbinding er skilyrði þátttöku eða vinninga.

4. Hvernig spáð er

Þátttakandi spáir fyrir um lokatölur (eftir 90 mín. + uppbótartíma, án framlengingar/vítaspyrnukeppni) í hverjum leik. Auk þess spáir þátttakandi fyrir um hvaða lið kemst áfram úr viðureigninni, þ.e. um sigurlið að lokinni mögulegri framlengingu og vítaspyrnukeppni (sjá töflu í 5. gr.). Spár læsast tveimur klukkustundum fyrir upphaf hvers leiks og verða ekki uppfærðar eftir það.

Aðeins vistaðar spár telja til stiga. Ósnert leikir sem sýna auðan spágluggi telja núll stig — það er á ábyrgð þátttakanda að staðfesta hverja spá með + eða takkanum áður en leikur læsist.

5. Stigagjöf

Fyrir hvern spáðan leik veitast eftirfarandi stig:

Niðurstaða spárStig
Nákvæm lokastaða rétt5
Réttur markamunur (en ekki nákvæm staða)3
Réttur sigurvegari (eða jafntefli)1
Röng spá0
Bónus: rétt spáð hvort liðið kemst áfram (útsláttur)+1

Aðeins hæsta stigaþrep gildir fyrir hvern leik. Bónus fyrir réttu liði spáð áfram í útslætti (+1) leggst ofan á það.

5b. Lokastaðan — spá um lokastöðu mótsins

Áður en 8-liða úrslit hefjast getur þátttakandi valið þrjú lið sem hann telur að endi í fyrsta, öðru og þriðja sæti mótsins. Þessar spár læsast við upphaf 8-liða úrslita og verða ekki uppfærðar eftir það.

SpáRéttNálægt (rétt lið í topp 3)
🥇 Heimsmeistari (1. sæti)10+3
🥈 Silfur (2. sæti)6+2
🥉 Brons (3. sæti)4+2

Lokastöðuspár eru óháðar Jókerum (sbr. 6. gr.). Aukastig fyrir nálægð (rétt lið í topp 3) koma ekki til viðbótar við stig fyrir rétta spá og geta einungis átt við ef þátttakandi giskar ekki á nákvæmlega rétt sæti fyrir tiltekið lið.

Dæmi um stigagjöf fyrir Lokastöðu

Ef þú spáðir liði í 1. sæti (Heimsmeistari):

  • Liðið endar í 1. sæti → 10 stig (nákvæm spá)
  • Liðið endar í 2. sæti → +3 stig (nálægð)
  • Liðið endar í 3. sæti → +3 stig (nálægð)
  • Liðið endar utan topp 3 → 0 stig

Ef þú spáðir liði í 2. sæti (Silfur):

  • Liðið endar í 2. sæti → 6 stig (nákvæm spá)
  • Liðið endar í 1. sæti → +2 stig (nálægð)
  • Liðið endar í 3. sæti → +2 stig (nálægð)
  • Liðið endar utan topp 3 → 0 stig

Ef þú spáðir liði í 3. sæti (Brons):

  • Liðið endar í 3. sæti → 4 stig (nákvæm spá)
  • Liðið endar í 1. sæti → +2 stig (nálægð)
  • Liðið endar í 2. sæti → +2 stig (nálægð)
  • Liðið endar utan topp 3 → 0 stig

Hámark úr Lokastöðu: 20 stig (allar þrjár spár nákvæmar). Hámark úr nálægðarstigum einum: 7 stig (3 + 2 + 2, ef öll þrjú liðin lenda á verðlaunapalli en ekki í réttu sæti).

6. Núnú-Jóker

Þátttakandi fær tvo Jókera í heildina fyrir allt leiktímabilið. Jóker má setja á hvaða leik sem er, hvenær sem er, fram að læsingu viðkomandi leiks.

  • Ef Jóker er settur á leik þar sem spá er rétt (nákvæm staða, markamunur, sigurvegari eða jafntefli), tvöfaldast öll stig þess leiks (×2) — bæði grunnstigin (5 / 3 / 1) og aukastigið +1 fyrir rétt spáð lið áfram í útslætti.
  • Ef Jóker er settur á leik þar sem spá er röng (0 stig), tapast Jókerinn án bóta.
  • Jóker verður að vera valinn áður en spá viðkomandi leiks læsist.
  • Jókerar endurstillast ekki milli umferða. Aðeins tveir Jókerar eru í boði á allt leiktímabilið.

Dæmi: Þátttakandi spáir nákvæmri lokastöðu (5 stig) og velur einnig rétt lið áfram í útslætti (+1 stig). Samtals gefur leikurinn 6 stig. Ef Jóker hefur verið settur á leikinn verða heildarstigin 12 stig (6 × 2).

7. Jöfn stig — úrslitaregla

Séu tveir eða fleiri með jafnmörg heildarstig ræðst röðin af eftirfarandi, í þessari röð:

  1. Fjöldi nákvæmra spáa (rétt lokastaða).
  2. Flest stig í úrslitaleik.
  3. Flest stig samanlagt í undanúrslitum, úrslitaleik og leik um 3. sæti.
  4. Fjöldi réttra Lokastöðuspáa (sbr. 5b. gr.).
  5. Séu þátttakendur enn jafnir er dregið milli þeirra með slembivalsforriti og röðunin skráð opinberlega í uppgjöri leiksins.

8. Vinningar

Vinningar ráðast af opinberu stigatöflunni í lok móts:

SætiVinningur
1. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 100.000 kr.
2. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 50.000 kr.
3. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 25.000 kr.
4. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 15.000 kr.
5. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 10.000 kr.
6.–10. sætiGjafakort í Smáralind fyrir 5.000 kr. hvert sæti
11.–20. sæti2 bíómiðar hvert sæti
  • Vinningar eru ekki reiðufé og eru afhentir sem gjafakort í Smáralind eða sem bíómiðar skv. töflunni hér að ofan.
  • Vinningar eru ekki framseljanlegir og ekki skiptanlegir fyrir reiðufé.
  • Núnú áskilur sér rétt til að skipta út vinningi fyrir sambærilegan vinning að verðmæti ef aðstæður krefjast.

9. Afhending og innlausn vinninga

  • Vinningshafar fá tilkynningu í gegnum uppgefið netfang og/eða símanúmer innan 14 daga frá lokum móts.
  • Vinningshafi verður að sanna auðkenni sitt við innlausn vinnings og gefa upp kennitölu. Sé auðkenni ekki staðfest með fullnægjandi hætti er ekki hægt að afhenda vinning og hann fellur niður.
  • Vinning þarf að innleysa innan 14 daga frá tilkynningu. Sé vinningur ekki innleystur innan tímafrests fellur hann niður og Núnú áskilur sér rétt til að útnefna næsta þátttakanda á stigatöflunni sem vinningshafa.
  • Núnú áskilur sér rétt til að fresta innlausn vinninga ef upp kemur ágreiningur um stigagjöf sem er til þess fallinn að draga í efa hvort vinningar séu greiddir til rétts aðila. Aðilum sem slík ákvörðun varðar er tilkynnt um það.
  • Aðeins einn aðalvinningur er í boði á kennitölu.
  • Kennitala er eingöngu sótt við innlausn vinnings, ekki við þátttöku.

10. Persónuvernd

  • Núnú er ábyrgðaraðili persónuupplýsinga og vinnur þær í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og GDPR (reglugerð ESB 2016/679).
  • Þegar þátttakandi velur að fá tilkynningar í leiknum (t.d. með rofa í Stillingum eða takka „Fá tilkynningar") veitir hann Núnú heimild til að senda upplýsingar og tilboð tengd HM leiknum og annarri þjónustu Núnú, bæði með tölvupósti á staðfest netfang og með SMS á staðfest símanúmer. Samþykki byggist á skýrri, virkri aðgerð þátttakanda og er skráð með dagsetningu og upprunasvæði fyrir eftirlit. Þátttakandi getur afskráð sig hvenær sem er í Stillingum leiksins eða með svarpósti/svar-SMS.
  • Þátttakandi getur hvenær sem er afturkallað samþykki og óskað eftir eyðingu gagna.
  • Hægt er að óska eftir eyðingu HM-aðgangs með því að senda beiðni á hmleikur@nunu.is. Eyðing tekur upp að 30 daga frá móttöku beiðninnar. Að lokinni eyðingu er ekki hægt að nýskrá aftur með sama símanúmeri eða netfangi.
  • Að öðru leyti vísast í persónuverndarstefnu Núnú. Á það við um varðveislutíma, vinnsluaðila, réttindi skráðra að öðru leyti o.s.frv.

11. Meðmæli og Val 2

Þátttakandi getur boðið öðrum að skrá sig í leikinn með einstökum meðmælahlekk. Meðmæli veita engin viðbótarstig á stigatöfluna og engan aðgang að stigum eða vinningum umfram það sem lýst er hér að neðan.

Þátttakandi sem hefur meðmælt þremur (3) eða fleiri einstaklingum sem allir hafa staðfest símanúmer sitt með SMS-kóða öðlast rétt til að skila inn seinni sjálfstæðri spáröð (Val 2). Val 1 og Val 2 fá stig sjálfstætt yfir allt leiktímabilið; til stigatöflu og vinningsúthlutunar gildir eingöngu sú spáröð sem hærri stig hlýtur.

Val 2 er persónulegur réttur þess þátttakanda sem meðmælti — ekki þess sem tók við meðmælum — og er ekki framseljanlegur. Meðmæli sem berast eftir að Val 2 hefur verið virkjað gefa engan viðbótarrétt.

Núnú áskilur sér rétt til að ógilda meðmæli þar sem grunur er um sviksamlega aðganga eða fjölaðgang sömu manneskju (sbr. 2. gr.), og að útiloka þátttakendur sem misnota meðmælakerfið.

12. Ábyrgð og breytingar

  • Úrslit leikja miðast við þau úrslit sem birt eru á heimasíðu mótshaldara, fifa.com, að hverjum leik loknum. Núnú áskilur sér rétt til að sannreyna úrslit einstakra leikja handvirkt. Rísi ágreiningur um úrslit leiks eftir að honum er lokið skal miða við úrlausn mótshaldara. Núnú áskilur sér rétt til að breyta stigagjöf vegna einstakra leikja við slíkar aðstæður.
  • Núnú áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar villur og útiloka þátttakendur sem svindla eða brjóta þessar reglur.
  • Núnú áskilur sér rétt til að fresta, breyta eða hætta við leikinn ef ófyrirséð atvik koma upp sem gera framkvæmd hans ómögulega eða óraunhæfa.
  • Núnú ber ekki ábyrgð á áhrifum af völdum FIFA, breytinga á móti eða öðrum atvikum sem Núnú hefur ekki stjórn á (t.d. veðurs, seinkana eða aflýstra leikja).
  • Núnú ber ekki ábyrgð á tæknilegum truflunum (t.d. internetbilun þátttakanda eða símkerfabilun).
  • Núnú áskilur sér rétt til að fella niður Val 2 hjá þátttakendum þar sem meðmælakerfið hefur verið misnotað, án fyrirvara og án bóta.
  • Núnú áskilur sér rétt til að uppfæra þessar reglur á leiktímabilinu ef þörf er á, t.d. vegna tæknilegra breytinga, óskýrleika eða aðstæðna sem ekki voru fyrirsjáanlegar. Uppfærðar reglur öðlast gildi um leið og þær birtast á vef leiksins. Þátttakendum er tilkynnt um efnisbreytingar innan hæfilegs tíma, á vef leiksins og með tölvupósti eða SMS á þá sem hafa staðfestar tilkynningar.

13. Höfundarréttur og vörumerki

Núnú hefur engin tengsl við mótshaldara eða aðra aðila sem koma að heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu. Notkun landsheita, fána og annarra opinberra tákna er einungis til upplýsingar fyrir þátttakendur.

14. Kvartanir og ágreiningur

Ef þátttakandi vill mótmæla stigagjöf, uppgjöri eða annarri ákvörðun í leiknum skal kvörtun send á hmleikur@nunu.is innan 7 daga frá tilkynningu um viðkomandi ákvörðun. Núnú svarar innan 14 daga frá móttöku kvörtunar. Kvartanir sem berast utan tímafrests eru ekki teknar til greina.

15. Lög og lögsaga

Um skilmálana gilda íslensk lög og rísi ágreiningur sem ekki verður leystur með kvörtunarferli skv. 14. gr. skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

16. Tengiliður

Fyrirspurnir og athugasemdir: hmleikur@nunu.is

Bættu við netfangi

Netfang er nauðsynlegt til að taka þátt. Það er notað fyrir innskráningu og tilkynningar um vinninga.

Staðfestu netfangið þitt

Við sendum staðfestingarhlekk á . Smelltu á hlekkinn í póstinum til að halda áfram.

Hlekkurinn getur birst í ruslpósthólfi (junk/spam) — athugaðu þar líka.

·
Þú hefur ekki vistað enn — skráðu þig svo spár þínar tapist ekki.

Skráðu þig inn í HM leik 2026

Þessi innskráning er aðeins fyrir HM-leikinn og er ótengt aðgangi þínum á www.nunu.is. Það kostar ekkert að taka þátt!

Með því að skrá þig inn samþykkir þú reglur og skilmála leiksins.

Veldu notandanafn

Notandanafnið birtist á stigatöflunni. Ekki hægt að breyta síðar — veldu vel!

@
3–20 stafir · bókstafir, tölur og undirstrik. Engin bil eða sérstafir.

Var þér boðið?

Ef vinur bauð þér með kóða, sláðu hann inn hér til að staðfesta meðmælin. Þú getur líka bætt kóðanum við síðar í Stillingum (innan 48 klst frá skráningu).